[RENTAL] Didymos DidyClick – burðarpoki

2.000 kr.
Brands:
Metro monochrome
Leopard
Setja á óskalista Þegar á óskalista

A one time administration and maintenance fee of 1500 ISK is added to the price for the rental period. 

Burðarpoki sem er bæði þægilegur og einfaldur. DidyClick er saumaður úr sömu vönduðu efnunum og burðarsjölin frá Didymos, styður vel við barnið og býður upp á möguleika til þess að bera barnið á marga ólíka vegu. Það þarf ekki að stilla ólarnar upp á nýtt þegar mismunandi aðilar nota pokann, vegna þess að pokinn er að hluta til hnýttur saman.

DidyClick Monochrome er með grafísku mynstri í sígildum litum sem víxlast á bakhliðinni.
DidyClick Leopard er með fallegu hlébarðamynstri sem víxlast á bakhliðinni.

Efnið er ofið úr lífrænni bómull og er meðalþungt, mjúkt og auðvelt að móta. Það teygist á því horn í horn, líkt og önnur efni frá Didymos, og er einfalt að laga að ólíkum þörfum og burðaraðferðum. Fjölhæfur burðarpoki sem hentar til þess að bera börn á öllum aldri.

Efni og eiginleikar

Aldur barns: Frá fæðingu

Metro Monochrome
Litur Antrasít, hrár hvítur
Efni: 100% lífræn bómull
Yfirborðsþyngd 210 g/m²

Leopard
Litur
Antrasít, sandur, ólitað
Efni: 100% lífræn bómull
Yfirborðsþyngd 240 g/m²

 

magapoki, burðarpoki, burðarsjal

Mynstur

Metro monochrome, Leopard

Stærðartafla

Nubo
Til þess að mæla fótinn þinn þarft þú A4 blað og blýant.
  1. Legðu A4 blaðið upp við vegg eða annan lóðréttan flöt
  2. Settu fótinn á pappírinn þannig að hællinn snerti vegginn
  3. Teiknaðu nú línu eða punkt við enda lengstu táarinnar, og við hælinn
  4. Taktu fótinn af blaðinu
  5. Mældu fjarlægðina milli punktanna tveggja í beinni línu
  6. Bættu 0,5-1,2cm til þess að gera ráð fyrir plássi í skónum fyrir framan tærnar
StærðBreiddLengd
206,113,3
216,213,9
226,414,6
236,515,3
246,615,9
257,016,6
267,417,3
277,817,9
287,918,6
298,119,3
308,219,9
318,320,6
328,521,3
338,621,9
348,722,6
Ef þú ert ekki viss getur þú líka litið á fótsporið í innsóla úr skó sem þú ert nú þegar að nota.
  1. Fjarlægðu innsólann úr skó sem þú ert að nota
  2. Mældu frá enda hælsins þangað sem fótsporið endar
Þú ættir að fá sömu niðurstöðu með þessum hætti og með aðferðinni sem er lýst hér að ofan. Ef þú ert enn ekki viss, eða ert á milli tveggja stærða, þá er oftast betra að taka stærri stærðina þar sem fætur geta vaxið og sokkar geta bætt nokkrum millimetrum við.