Háir og hlýir barnaskór frá KOEL, framleiddir úr Napa leðri og rúskinni með ullarfóðrun. Sólinn er Bernardino sóli, með breiðu táboxi og sérhannaður fyrir börn. Skórnir bjóða upp á þægilegan stuðning við göngu og heilbrigðan vöxt, og sólinn er stamur og með táhlíf. Þá hafa skórnir vatnshelda og andandi Tex fóðrun.
(minimalískir skór)
Um Koel
Koel leggur áherslu á gæði, góð snið, nýsköpun, hönnun og sjálfbærni. Skórnir frá Koel eru hannaðir og framleiddir í portúgal og byggja á langri reynslu í því að búa til sóla sem endast, ásamt nýjustu þekkingu á sjálfbærum efnum og skóm sem passa vel.









