Koel Fila – Merino lining – barefoot skór

21.900 kr.
Setja á óskalista Þegar á óskalista

Fallegir ökklaskór sem passa við flest tilefni, einstaklega þægilegir og hlýjir. Það eru Fila frá Koel, fóðraðir með merínóull. Sérlega góðir barefoot chelsea ökklaskór með bæði rennilás og teygju, og fóðrunin tryggir að þeir henta mjög vel þegar kalt er í veðri. Efra yfirborð skónna er úr hydro leðri, sem hrindir frá sér vatni og heldur þannig fótunum þurrum ef skyndilega fer að rigna. Hvort sem þú ert að klæða þig upp eða bara fara út í búð, þá geta Fila hentað.

Fila eru líka fáanlegir án fóðrunar úr merínóull, smelltu hér til þess að skoða þá án ullarfóðrunar..

Efni

  • Hydro leður
  • Lokast með teygju og rennilás
  • Endurunninn innsóli
  • Fóðrun úr merínóull
  • Gúmmísóli

Hydro leður

Hydro leður hrindir frá sér vatni, þannig að skórnir henta vel í rigningu og blotna ekki auðveldlega í gegn. Efnið er jafnframt mjúkt og endist vel.

Vegna þess að efnið hrindir frá sér vatni þorna skórnir fljótt.

Umhirða

  • Ekki er hægt að þvo skóna
  • Til þess að fjarlægja ryk er best að nota mjúkan bursta og strjúka alltaf í sömu átt
  • Til þess að fjarlægja bletti er best að nota smáar hreyfingar með venjulegum bursta yfir blettnum
  • Fjarlægja má gúmmíleifar af skónum með þurrum klút
  • Ekki þrífa skóna með vatni, þetta getur valdið blettum
  • Það þarf að halda skónum frá útfjólublárri geislun sólarinnar og dýpri snertingu við vökva. Annars geta skórnir misst vatnsfráhrindandi eiginleika sína og aflitast.

Um Koel

Koel leggur áherslu á gæði, góð snið, nýsköpun, hönnun og sjálfbærni. Skórnir frá Koel eru hannaðir og framleiddir í portúgal og byggja á langri reynslu í því að búa til sóla sem endast, ásamt nýjustu þekkingu á sjálfbærum efnum og skóm sem passa vel.

stærð

36, 37, 38, 39, 40, 41, 42, 43, 44

Stærðartafla

Koel Chelsea
Til þess að mæla fótinn þinn þarft þú A4 blað og blýant.
  1. Legðu A4 blaðið upp við vegg eða annan lóðréttan flöt
  2. Settu fótinn á pappírinn þannig að hællinn snerti vegginn
  3. Teiknaðu nú línu eða punkt við enda lengstu táarinnar, og við hælinn
  4. Taktu fótinn af blaðinu
  5. Mældu fjarlægðina milli punktanna tveggja í beinni línu
stærðfits feet this longbreidd
3621.7-22.3cm8.5cm
3722.8-23.4cm8.7cm
3823.4-24.0cm8.9cm
3924.0-24.6cm9.2cm
4024.7-25.3cm9.2cm
4125.3-25.9cm9.4cm
4225.6-26.2cm9.4cm
4326.3-26.9cm10.1cm
4427.0-27.7cm10.3cm
 
Ef þú ert ekki viss getur þú líka litið á fótsporið í innsóla úr skó sem þú ert nú þegar að nota.
  1. Fjarlægðu innsólann úr skó sem þú ert að nota
  2. Mældu frá enda hælsins þangað sem fótsporið endar
Þú ættir að fá sömu niðurstöðu með þessum hætti og með aðferðinni sem er lýst hér að ofan. Ef þú ert enn ekki viss, eða ert á milli tveggja stærða, þá er oftast betra að taka stærri stærðina þar sem fætur geta vaxið og sokkar geta bætt nokkrum millimetrum við.