Regnheld hlíf frá Mamalila

6.900 kr.

Out of stock

Brands:

Vind- og vatnsþétt hlíf sem er hægt að setja beint yfir burðarpoka eða burðarsjal til þess að halda barninu þurru. Hlífina má brjóta saman þannig að hún taki mjög lítið pláss, og taka með sér hvert sem er, svona til vonar og vara.

Eiginleikar:

  • Áreiðanleg vörn gegn rigningu
  • Hentar fyrir allar gerðir burðarpoka og burðarsjala, og óháð því hvort barnið er hátt eða lágt á líkama þess sem ber þar
  • Nýstárleg samanbrjótanleg hetta, sem er líka hægt að nota sem kraga
  • PU-himna sem andar
  • Praktískir innri vasar fyrir fætur barnsins
  • Víð, stillanleg, vörn fyrir hálsinn sem kemur í veg fyrir kulda og trekk
  • Ein stærð sem hentar börnum frá 0 til um það bil 2 ára

Efni

Hlífin er samsett úr þremur lögum

  • Lag 1: 94% pólíester, 6% spandex
  • Lag 2: 100% pólíúretan
  • Lag 3: 100% pólíester

Aldur barns: Ein stærð, hentar börnum frá 0 til u.þ.b. 1,5 ára
Litur Silfurgrár

Stærðartafla

Nubo
Til þess að mæla fótinn þinn þarft þú A4 blað og blýant.
  1. Legðu A4 blaðið upp við vegg eða annan lóðréttan flöt
  2. Settu fótinn á pappírinn þannig að hællinn snerti vegginn
  3. Teiknaðu nú línu eða punkt við enda lengstu táarinnar, og við hælinn
  4. Taktu fótinn af blaðinu
  5. Mældu fjarlægðina milli punktanna tveggja í beinni línu
  6. Bættu 0,5-1,2cm til þess að gera ráð fyrir plássi í skónum fyrir framan tærnar
StærðBreiddLengd
206,113,3
216,213,9
226,414,6
236,515,3
246,615,9
257,016,6
267,417,3
277,817,9
287,918,6
298,119,3
308,219,9
318,320,6
328,521,3
338,621,9
348,722,6
Ef þú ert ekki viss getur þú líka litið á fótsporið í innsóla úr skó sem þú ert nú þegar að nota.
  1. Fjarlægðu innsólann úr skó sem þú ert að nota
  2. Mældu frá enda hælsins þangað sem fótsporið endar
Þú ættir að fá sömu niðurstöðu með þessum hætti og með aðferðinni sem er lýst hér að ofan. Ef þú ert enn ekki viss, eða ert á milli tveggja stærða, þá er oftast betra að taka stærri stærðina þar sem fætur geta vaxið og sokkar geta bætt nokkrum millimetrum við.