Hver segir að kuldaskór geti ekki verið bæði flottir og þægilegir? Faro frá Koel eru sérlega vel hannaðir barefoot kuldaskór sem henta vel við íslenskar aðstæður. Þeir eru mjög hlýir, fóðraðir með lambsull, og úr hydro leðri sem hrindir frá sér vatni og heldur fótunum þurrum. Sólinn á Faro er stamur og hentar þannig vel í hálku, framleiddur úr 100% náttúrulegu gúmmíi og 0,5cm þykkur. Faro hafa bæði reimar og rennilás: Reimarnar tryggja að þeir laga sig vel að ökklanum, en rennilásinn gerir það einfalt að fara í og úr.
Til þess að hreinsa skóna að utan er best að nota rakan klút.
Efni:
- Efra lag: Hydro leður
- Fóðrun: Lambsull
- Sóli: 100% náttúrulegt gúmmí
- Innsóli: Úr endurunnu efni, hægt að skipta út
- Lokun: Reimar og rennilás
- Flatur sóli: 0,5cm
Eiginleikar:

Um Koel:
Koel leggur áherslu á gæði, góð snið, nýsköpun, hönnun og sjálfbærni. Skórnir frá Koel eru hannaðir og framleiddir í portúgal og byggja á langri reynslu í því að búa til sóla sem endast, ásamt nýjustu þekkingu á sjálfbærum efnum og skóm sem passa vel.

















